Skilmálar og Persónuvernd
Skilmálar og persónuvernd
Þegar þú heimsækir vefinn bilrudur.is þá verða til upplýsingar um heimsókn þína. Orka ehf virðir friðhelgi persónuupplýsinga og því miðlum við þeim upplýsingum sem safnast, ekki til ótengdra aðila. Með því að heimsækja vefinn lýsir þú þig samþykkan skilmálum okkar um persónuvernd og öryggi.
Eigandi bilrudur.is er Orka hf, kt. 640805-0720, Stórhöfða 37, 110 Reykjavík. VSK númer: 87560.
Almenn ákvæði
Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru og/eða þjónustu á vefsvæðinu www.bilrudur.is. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur Orku ehf annars vegar og kaupanda vöru eða þjónustu hins vegar. Hafi skilmálar þessir ekki verið samþykktir við heimsókn á vefsíðu bilrudur.is teljast þeir samþykktir við fyrstu kaup á vöru eða þjónustu.
„Kaupandi“ er einstaklingur, sem er aðili samnings en stundar ekki viðskipti eða aðra athafnastarfsemi, þ.e. einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Kaupandi verður að vera a.m.k. 16 ára. „Kaupandi“ getur líka verið fyrirtæki en lög um þjónustukaup nr. 42/2000 eiga þá við. Þessi lög gilda um réttarstöðu samningsaðila þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir. Orka ehf selur vörur eða þjónustu til kaupanda á vefsvæði sínu. Orka ehf býður (einnig) kaupanda að fá vöruna senda heim til sín gegn gjaldi eða sækja í verslun Orku ehf.
Upplýsingar og verð
Verð á vefsvæði bilrudur.is og í útsendum póstum eru með virðisaukaskatti og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. Orka ehf áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef að viðkomandi vara er uppseld, skemmd eða gölluð. Orka ehf mun upplýsa kaupanda um allt slíkt eins fljótt og kostur er, og hugsanlega koma með tillögu að annarri vöru sem kaupanda gefst kostur á að samþykkja eða hafna.
Pöntun og afhending
Við kaup á bilrudur.is skráir kaupandi fullt nafn, heimilisfang, símanúmer og tölvupóstfang sitt og samþykkir að hann hafi lesið persónuverndarstefnu félagsins. Einnig getur kaupandi samþykkt að vera á póstlista Orku ehf. Pöntun kaupanda á bilrudur.is er bindandi þegar hann hefur staðfest pöntun sína í kaupferlinu. Orka ehf er skuldbundið að afgreiða pöntun kaupanda (nema í tilvikum sem nefnd eru fyrr í skilmálun þessum). Kaupandi getur séð afrit af pöntun sinni og reikning á tölvupóstfangi sínu þegar búið er að bóka pöntun. Í kaupferlinu velur kaupandi sér afhendingarleið. Þegar vara er send leggur Orka ehf sig fram um að afhenda vöru á réttum tíma til kaupanda en fer eftir því hvaða flutningsleið er valin. Ef kaupandi hefur valið að fá sendingu með Póstinum þá ber Orka ehf enga ábyrgð á afhendingartíma sendingarinnar né tjóni sem kann að vera í flutningi eftir að vara hefur verið send frá Orku ehf. Pósturinn getur ekki sent sendingar heim að dyrum alls staðar á landinu. Sé vara yfir 40KG er ekki frí heimsending með póstinum nema með sérstöku samþykki starfsmanns Orku ehf, kaupandi getur valið um að greiða sjálfur sendingarkostnað eða fengið heimsendingu frítt í mánaðarlegri ferð Orku ehf í kringum landið. Nánari upplýsingar um þjónustu póstsins má finna á heimasíðu Póstsins.
Yfirferð á vöru
Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að byrja á því að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestingu og reikning. Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar fylgi þær með vörunni. Ef kaupandi telur að varan sé ekki í samræmi við vörulýsingu þá þarf hann að senda tilkynningu þess efnis með tölvupósti eða hafa samband við þjónustuver Orku ehf. Orka ehf áskilur sér rétt að sannreyna staðhæfingu innan 7 daga.
Greiðsla
Greiðslu getur kaupandi innt af hendi á ýmsa vegu:
Orka ehf býður viðskiptavinum upp á reikningsviðskipti þar sem öll vörukaup eru færð í reikning og er hvert úttektartímabil almanaksmánuðurinn. Uppsöfnuð viðskiptaskuld er með gjalddaga 1. dag næsta mánaðar og eindagi er 15. þess sama mánaðar. Öll reikningsviðskipti eru færð í reikning og er hvert úttektartímabil almanaksmánuðurinn. Þegar eindaga greiðsluseðils ber upp á helgi eða frídag er mikilvægt að greiða reikning síðasta virka dag fyrir eindaga fyrir klukkan 21
Kortagreiðsla fer fram á sama tíma og kaupandi skráir kaup sín. Greiðsla með kreditkorti fer fram í gegnum örugga greiðslugátt sem kaupanda er beint sjálfkrafa til þegar hann fyllir út greiðsluupplýsingar. Þegar kaupandi staðfestir upplýsingarnar er greiðslan skuldfærð af kortinu. Einnig er hægt að nýta sér Netgíró möguleikann og má sjá gildandi skilmála þeirra á vefsvæði Netgíró. Ef kaupandi á inneign hjá Orka ehf getur hann greitt pöntun að hluta eða öllu leyti með inneign sinni.
Vaxtakjör og innheimtukostnaður
Sé reikningur ekki greiddur á eindaga reiknast dráttarvextir frá gjalddaga.
Falli skuld í eindaga eru send út innheimtuviðvörun og innheimtubréf og er kostnaður vegna þessarar innheimtu skuldfærður á viðskiptareikning. Vísað er til laga nr. 95/2008 og reglugerðar varðandi innheimtugjöld.
Sé innheimtuviðvörun og innheimtubréfi ekki sinnt þá er krafan send í lögfræðiinnheimtu.
Rafrænir reikningar og tölvupóstur
Viðskiptavinir geta óskað eftir því að fá senda rafræna reikninga og/eða reikninga í tölvupósti, daglega.
Skilaréttur
Orka ehf skuldbindur sig til að afhenda kaupanda vöru eða þjónustu fyrir kaupum í samræmi við skilmála þessa og gildandi rétt. Kaupandi getur skilað vöru til Orku ehf. innan 14 daga, valið nýja eða fengið hana endurgreidda að fullu. Orka ehf áskilur sér aftur á móti rétt til að skoða að varan sé í lagi og til að koma í veg fyrir misnotkun á 14 daga skilarétti. Varan þarf að vera í upprunalegu ástandi ásamt umbúðum. Reikningur eða kvittun fyrir kaupum eru skilyrði fyrir vöruskilum. Einnig þurfa allir aukahlutir að fylgja með vörunni sé um slíkt að ræða. Orka ehf áskilur sér rétt til að neita skilarétt sé um að ræða sérblandað lakk þar sem kaupandi er ávallt ábyrgur fyrir að rétt litanúmer fylgi með pöntun sinni sem Orka ehf blandar eftir. Ef til endurgreiðslu kemur innan 14 daga frá kaupum, skv. tilmælunum, mun Orka ehf endurgreiða kaupanda vöruna á sama hátt og viðskiptavinur notaði við greiðslu - þ.e. með bakfærslu á kreditkorti, innlögn á bankareikning eða með inneign hjá Orka ehf sem kaupandi getur ráðstafað að vild í næstu kaupum hjá Orka ehf.
Galli
Ef vara er gölluð er Orka ehf skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003 á kaupandi rétt á því að fá gallaða vöru bætta ef tilkynning berst okkur innan tveggja mánaða frá því að kaupandi varð var við galla. Orka ehf mælir með því að kaupandi sendi tölvupóst eða hringi í þjónustuver Orka ehf sem fyrst frá því að galli uppgötvast. Orka ehf sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins. Orka ehf áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð innan 7 daga.
Ábyrgð
Ábyrgð Orka ehf hefur ekki í för með sér takmarkanir á rétti sem kveðið er á um í lögum um neytendakaup nr. 48/2003. Ábyrgð vegna galla á vöru er í samræmi við lög um neytendakaup og miðast við dagsetningu kaupa til einstaklinga. Ef um er að ræða sölu til fyrirtækis er ábyrgð á galla 1 ár frá kaupdagsetningu samkvæmt lögum um lausafjárkaup nr. 50/2000.
Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits eða notkunar á vöru sem eðlilegt þykir að endist skemur en 2 ár. Ábyrgð fellur úr gildi ef vara hefur verið opnuð eða átt við hana án samþykkis Orka ehf þrátt fyrir að þar hafi verið viðurkenndur aðili. Ábyrgðin fellur líka úr gildi ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar. Ekki er ábyrgð á hugbúnaði.
Orka ehf er ekki skuldbundið til að sjá um viðgerð á vöru, gefa afslætti eða skipta út vöru eftir að ábyrgðartíma lýkur. Orka ehf áskilur sér rétt til að sannreyna að galli eða bilun heyri undir ábyrgðarskilmála innan 7 daga. Ef vara fellur undir ábyrgðarskilmála þá er Orka ehf skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa.
Eignarréttur
Seldar vörur eru eign Orka ehf þar til kaupverð er greitt að fullu.
Annað
Orka ehf áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessara skilmála, enda verði kaupanda tilkynnt um það. Útsending nýrra skilmála til kaupanda og/eða birting á vefsíðu Orka ehf telst nægileg tilkynning. Litið er svo á að kaupandi hafi samþykkt breytinguna ef hann kaupir vöru eða þjónustu eftir að tilkynning um breytingu hefur verið gefin út.
Ágreiningur
Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara viðskiptaskilmála eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef allt þrýtur er heimilt að reka mál vegna þessa fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 46/2000, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003, sem og ákvæði laga um neytendasamninga, nr. 16/2016.
Gildistími
Skilmálar þessir gilda frá 14. desember 2020.